LÝSING NÁMSKEIÐA VÍNSKÓLANS.
VÍNSKÓLINN GETUR BOÐIÐ UPPÁ EFTIRFARANDI NÁMSKEIÐ, ANNAÐ HVORT Á DAGSKRÁ EÐA FYRIR SÉRHÓPA.
VÍNFRÆÐI - ÞRIGGJA NÁMSKEIÐA SYRPA
Kjörið fyrir þá sem vilja virkilega setja sig inn í vínheiminn, einstaklega skemmtilegt.
Þrúgurnar og vínviðurinn
Hverjar eru einkenni algengustu þrúgna sem talað er um - en líka hverjar eru ekki eins algengar, hvaða blöndur eru algengastar og af hverju... Lesa sig í gegnum miðann á flöskunni og skilja vínviðinn.
Víngerð og vínlandafræði.
Einkenni víngerðarinnar í stærstu löndunum, af hverju Cabernet Sauvignon eða Shiraz/Syrah eru allt öðru vísi eftir því hvaðan þau koma.
Matur og vín.
Farið dýpra í samsetningu víns og matar, hvað ber að athuga þegar vín er valið (eða matur) ef markmiðið er að fá það besta úr þeim báðum.
Verð: 7000 kr fyrir 3 námskeið (15% afsláttur)
GRUNNNÁMSKEIÐ.
Listin að smakka
Grunnnámskeið um hvernig er best að nálgast víninu: hvað er sýra? hvað eru tannín? hvernig er vínið búið til? hvernig þekkir maður eikina? Nokkur sláandi dæmi um þrúgurnar, mismunandi víngerð, mismunandi lönd.
Verð: 3000 kr á mann
Matur og vín.
Grunnnámskeiðið, en innihaldið kemur mörgum á óvart. Matur og vín eiga samleið en alltaf er hægt að gera gott betra. Hvað er það sem þarf að passa? Hvernig nemum við og skynjum mat og vín saman? Hvað ber að forðast og hvað smellur saman?
Sýnishorn af matvælum og 6 vín gefa okkur nokkur svör.
Verð: 3000 kr á mann
Smökkum og giskum.
Framhaldsnámskeið sem hægt er að taka sjálfstætt. Markmiðið er að vekja meðvitund um lyktarskynið og virkja minnið okkar þegar kemur að því að þekkja betur vínin. Við förum í smá lyktarleik og smökkum 5-6 vín blint til að finna okkar eigin smekk fordómalaust.
Verð: 3000 kr á mann
SÉRNÁMSKEIÐ
Það verður alltaf aðalmarkmiðið þegar maður kaupir eina flösku af víni, að hafa mat með, hvort sem það er snarl, ostabakki eða heil máltíð. Vínskólinn aætlar að bjóða uppá léttar og skemmtilegar uppákomur þar sem samsetning af mat og vín verður í fyrirrúmi: fá einfalda máltíð á besta verði og prófa nokkur vín með.
Námskeiðin í samstarfi við Ostabúðina (kvöldverður) kl. 18.30: verð 4000 kr, 3 smáréttir, 1 aðalréttur og 4-5 tegundir af víni. (öll námskeið merkt með gulu)
RIESLING OG SJAVARFANG,
Hver veit nema við fáum kræklinga frá Hrísey, kúskel frá Þorshöfn eða humar frá Hornafirði? Riesling er væntanlega fyrsti valkosturinn, drottning þrúgnanna hefur þó margar útgáfur.
Í samstarfi við Ostabúðina.
LAMBIÐ OG SPÆNSKU VÍNIN
Það hefur alltaf verið sagt að Bordeaux og spænsku vínin ættu að eiga best við lambið - nú könum hvernig mismunandi spænsk vín passa með mismunandi rétti en alltaf lambakjötið.
Í samstarfi við Ostabúðina.
ÍTALÍA - MATUR OG VÍN
Það er meira en pizza og pasta á Ítalíu, risotto og ýmsir sveitaréttir þar sem tómatar eru í aðalhlutverki. Ítölsk vín ættu að vera pottþéttir þá en hversu pottþéttir? Farið er víða um þetta gosenland matar og víns.
Í samstarfi við Ostabúðina.
CHABLIS OG FISKRÉTTIR - panta sérstaklega
Fiskréttirnir okkar geta verið frábærir, glænýtt hráefni og snilld kokkanna eru fjársjóður. Chablis (úr Chardonnay þrúgunni) á sérstaklega vel við bragðmikinn fisk - en Chablis eru mismunandi. Nokkrar tegundir verða í boði, skýring gefin á mismununum.
Í samstarfi við Ostabúðina.
TAPAS OG SPÆNSK VÍN
Veitingastaðir eiga til að kalla tapas allt sem er á brauðsneiði - en alvöru tapas frá Spáni eru margt annað: chorizo, manchego ostur, krabba, smokkfiskur... og vínin mega vera hvít, rauð ... eða Tio Pepe.
Í samstarfi við Ostabúðina.
VÍN MEÐ LAMBINU OKKAR
Lambið okkar er alveg eins og fiskurinn fyrsta flokks hráefni og við höfum gjarnan flokkað það undir villibráð - kryddlegið af náttúruhendi. Það er fíngert kjöt og þarf að velja vín við hæfi á móti, elegant og fáguð. Þau geta verið mörg og við látum á það reyna.
Í samstarfi við Ostabúðina.
VIN MEÐ AUSTURLENSKUM MAT
Asía er Indía og margar tegundir af karrí, Thailand og missterk karrí eða annað, Singapúr, Malaysía, Bali, Kína sem býður uppá margslungið ævintýri bragðlaukanna. Á það að vera rautt? hvítt? rosavín? bjór? Við þrifum okkur áfram.
Vín með villibráð
Haustið er tíminn þar sem landið hefur verið gjöfult og títringur er í mönnum til að gripa byssu og fylla búrið. Svo skal haldin veisla - ef vanda á valið á vínunum, þar að athuga nokkur atriði. Þetta gerum við með aðstoð góðra veiðimanna.
Verð: 4000 kr á mann (skammtar af villibráð innifaldir)
Vín með Jólamatnum
Uppáhaldspurningin virðist vera "hvaða vín á að hafa með hangikjöti?" - og byrja allir að prófa hitt og þetta. En jólamaturinn er orðinn ansi fjölbreyttur og það getur verið nokkuð vandasamt að velja hátíðarvín, sérstaklega ef mann langar að velja vín í dýrara flokki. Þetta gerum við með aðstoð Jóa og kokkana í Ostabúðinni.
Verð: 4000 kr á mann (skammtar af jólamat og dýrari vín)
Ólífuolíurnar
Ólífuolíurnar eru að nálgast vínheiminum: Cru olíur sem koma frá tiltekna ekru, flokkun eftir því hvort angan og bragð eru graskennt eða blómakennt... Vínskólinn hefur kynnt sér ítarlega hvað í þeim býr og til boða stendur ferðalag um Miðjarðarhafið - matur og ólífuolíur!
Verð: 2 500 kr á mann - lágmarksfjöldi 16 manns
ATHUGA námskeiðið verður í Ostabúðinni á Skólavörðustig 8, kl 18.30.
Vín frá Ítalíu.
Ítölsk vín njóta mikilla vinsælda og víngerðin hefur gjörbreyst þar í landi s.l. 10-15 árin. En það er ennþá frekar flókið að rata innan um vottunarkerfið, svæðin og heiti, sérstaklega þegar úrvalið í Vínbúðum er eins mikið og raun ber vitni. Við förum í skemmtilegt ferðalag og smökkum 5-6 vín einkennandi fyrir hvert svæði.
Verð: 3500 kr á mann
Vín frá Toskana.
Frá Toskana kemur Chianti. en hver er munurinn á Chianti og Chianti Classico? Hvað einkennir víngerð manna og í hverju eru hún frábrugðin frá einum Chainti í annan? Og er bara til Chianti í Toskana?
Þetta námskeið má telja sé undirbúningsnámskeið fyrir ferðina í maí 2008.
verð: 3500 kr á mann
Vín frá Alsace.
Eina svæði í Frakklandi þar sem vínin verða að heita þrúgunafni, eingöngu hvítvín. En það býr margt í Alsace, aldagamlar hefðir, framsækni, "terroir" er einstaklega fjölbreytt og áhrifamikið, grand crus og einnar ekru vín ná óþekktum hæðum í hvítvíni. Að námskeiði loknu, langar mann bara að slást með í för til Alsace í maí 2007 eða seinna!
Verð: 3500 kr á mann
Bordeaux (1) og (2)
Bordeaux verður alltaf viðmiðunin í víngerð í heiminum, þrátt fyrir að bestu vínin séu að sprengja verðskalann (og eiga það skilið) og ódýru vínin eiga erfitt um vik vegna samkepppni og minnkandi neyslu. Við förum nokkuð djúpt í það sem gerir Bordeaux einstakt í heiminum (Dominique er komin með alþjóðleg kennsluréttindi frá Bordeaux Vínskólanum og miðlar nýjustu upplýsingum út frá því).
Verð: 5000 kr fyrir bæði námskeiðin
Verð fyrir 1 námskeið: 3500 kr (vor 2009)
SHIRAZ OG SYRAH
Syrah kemur upprunalega frá Rhône dalnum - en fór í farangur frumkvöðlanna af vínrækt í Ástralíu - þar fann hún allt annað "terroir", aðlagaðist einstaklega vel en breyttist líka, hún varð að Shiraz. En hefur hún enn eitthvað sameiginlegt við syrah - og af hverju heitir hún stundum shiraz og stundum syrah? Og kemur hún frá Iran?
Verð: 3500 kr á mann
Ostar og vín.
Í samstarfi við Ostabúðina á Skólavörðustig.
Ostar og rauðvín er það sem manni dettur helst í hug að eigi best saman. Í flestum tilfellum er það líka rétt, en svo eru sumir ostar sem kalla á annað. Geitaostur er frekar súr, gráðaostur er feitur og sterkur - hvað á þá að velja? Við prófum okkur áfram, hefðbundið og óhefðbundið.
ATH: Námskeiðið verður í Ostabúðinni (Skólavörðustig 8) kl 18:30.
Verð: 4000 kr á mann
Vínin frá Spáni.
Spánn hefur lengi verið þekkt eingöngu fyrir vín frá Rioja og Penedes, og í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum. En mörg önnur svæði eru mjög spennandi og kallast nýju svæðin þótt hefðir þeirra séu ekki lengur svo nýjar. Ribeira del Duero, Navarra, Yecla, Castilla-La Mancha eru bara nokkur nöfn.
Verð: 3500 kr á mann.
Hvítvín annað en Chardonnay.
Það er oft beðið um Chardonnay þegar mann langar í hvítvínsglas, mætti stundum setja samasem merki á milli. Ef Chardonnay er útbreiðasta þrúgan í heiminum og gefur nánast alltaf (mis)gott vín, þá eru ótal hvítvíns þrúgur í heiminum sem eru bæði spennandi og stórkostlegar. Roussane? Viognier? Cattaratta? Soave? Torrontes? Sauvignon Blanc? Við berum þetta saman og smökkum.
Verð: 3500 kr á mann
Freyðivín og kampavín.
Margar aðferðir eru notaðar til að fá vínið til að freyða - en í upphafi var það tilviljun. Freyðivínin eru mörg og mjög mismunandi í gæði og verði - kampavín eru einnig mjög mismunandi og nokkrar góðar tegundir fást í Vínbúðum að staðaldri. Hvað býr að bak við miðann, af hverju freyðir vínið, af hverju Champagne, þetta er skemmtilegt ferðalag um spennandi tegundir.
Verð: 3500 kr
Bjór með Eymari.
Eymar hefur kynnt sér bjórheiminn í allri sinni fjölbreytni, í Belgíu, Englandi og víða. Úrvalið af bjór hefur snaraukist í vínbúðunum enda 80% af sölunni þar er bjór... Mort Subite, Delirium Tremens, Trappiste, London Porter, Old Speckled Hen eru skrautleg nöfn en það liggur saga á bak við hvert nafn. Afmælisgjöf bjóráhugamannsins í ár !
Verð: 3500 kr
Lífræn vín.
Lífræn vín eru sýnilegri og margt mjög skemmtilegt leynist í hillum vínbúðanna. En hvað er lífræn ræktun í vínheiminum? Hvað eru stigin í að vera vistvænt, lífrænt eða biodýnamiskt ("lífefld")? Hvað þýðir það varðandi aukaefni sem eru notuð í víngerð? Af hverju eru þessi vín oftast dýrari? Þegar stórt er spurt...
Verð: 3500 kr á mann
Sérrí eða Sherry: heill heimur frá Andalúsíu.
Sérrí er sennilega vandmetnasta víntegundin á Íslandi - og Vínskólinn hefur lofað að bæta úr því ! Sérrí er nefnilega allt annað en sæti drykkurinn sem gleymdist alltaf í vínskápnum eða er notað í triffle eða til að bleyta kökubotn. Það er hægt að hafa eina tegund af sérrí við hvern rétt í heilli hátíðarmáltíð, það er besti fordrykkur, það er ljúfasti drykkurinn til að hugleiða um heiminn og geiminn... Og það er heill heimur í sjálfu sér, hvernig það er framleitt og geymt.
Verð: 3500 kr á mann
Glösin og vínsmökkun - Eikin og áhrif hennar í víngerð.
Þessi tvö námskeið sem eru ótengd fara inn á nýtt svið vínnámskeiða: skoða dýpra í því sem hefur áhrif þegar við smökkum vín - og eru þar af leiðandi gott framhald á grunnnámskeiðunum "Matur og Vín" eða syrpunni sem lýst er efst á þessari síðu. Glösin geta verið afar mikilvæg þegar maður ber vínið fram, og ekki eingöngu vegna fagurgildis þeirra - við gerum tilraunir. Sömuleiðis er eikin ekki bara eik og margt stendur til boða - hvernig þekkjum við hana og hvað gerist, af hverju er eik notuð ?
Verð: 3000 kr fyrir hvert námskeið
WHISKY: Maltvíski og þeirra einkenni.
Skosku vískiin hafa sótt í sér veðrið undanfarin ár og eru mjög ofarlega á listanum hjá vínáhugamönnum, ásamt koníaki. En þau eru gríðalega mismunandi - og við reynum að greina á milli.
Verð: 4000 kr á mann
Koníak.
Koníak varð til af tilviljun eins og svo margt annað vín, og varð smám saman að eðaldrykki sem kallar í huganum myndir af leðurstólum og vindlum. Cognac svæðið er ekki stórt en margt hefur áhrif á gæði og einkenni tegundanna. Og það er auðveldara en maður heldur að finna tegundina sem höfðar mest til manns.
Verð: 4000 kr á mann