Leita




Allar fréttirnar um Vínskólann

Vínsmökkunarferð til Kataloníu í haust?
Upp hefur komið sú hugmynd að reyna að fara vínsmökkunarferð til Kataloníu snemma í haust og væri mjög gott að heyra hvort sú hugmynd fær hljómgrunn. Flogið yrði til Barcelona og gist í vínhéraði, líklega á tveimum stöðum. Þar sem flogið er einu sinni í viku væri vínsmökkun í 4 daga og frjálsir dagar (á eigin kostnað) það sem eftir er. Mögulegir dagsetningar eru 28. ágúst til 4. september.Það er nóg af vínhúsum til að heimsækja, en efstir á listanum eru Torres, Pares Balta, Abadal, einn Cava framleiðandi, vínhús í Priorat. Ekkert verð er enn komið en það virðist vera hægt að hafa það hóflegt miðað við flugverð. Endilega láta heyra í ykkur.

Póstlisti
Skráðu þig á póstlista Vínskólans til að fá fréttabréf um námskeið og ferðir - fróðleiksmoli fylgir alltaf með!
Netfang:
Nafn:
Tek við HTML pósti




© Vínskólinn 2006 – s.: (+354) 898 40 85 – vinskolinn(hja)vinskolinn.is og dominique(hja)vinskolinn.is