Leita




Allar fréttirnar um Vínskólann

Chile: vínhéruðin og jarðskjálftinn
Eins og Aurelio Montes segir "Chile hefur þolað helminginn af Top 10 verstu jarðskjálfta veraldar, þar af þann alsterkasta, og skjálftinn þ. 27. febrúar var 4. steerkasta í heiminum" og eins og hann botnar "It seems that God, in his infinite wisdom, decided to test Chile and our determination with this huge blow, but we shall overcome.  From trials like this, you emerge stronger". Mestu skemmdirnar hafa yfirleitt verið í Colcahgua, Apalta og mið Chile, og í Bio-Bio í suðri.
Vínrækt er að mestu leyti í héruðum sem urðu verst úti, en í flestum tilfellum hafa skemmdirnar einskoðast við flöskur, tunnur og ámur sem hafa oltið og brotnað, stýrikerfi sem hafa eyðilagst vegna rafmagnsleysisofur sem eru ónothæfar og hús sem hafa skekkst ef ekki hrunið. En mannfall virðist ekki hafa verið (enda mannfallið í þessum hamförum furðutakmarkað) og uppskeran var í þann mund að byrja þannig að tjónið var enn takmarkaðra fyrir vikið. Concha y Toro hefur þolað mikið tjón í vínhúsunum sínum, Casa Lapostolle einnig - en baráttuhugur er í þeim öllum til að halda ótrauð áfram að senda gæðavín útí heim.

Póstlisti
Skráðu þig á póstlista Vínskólans til að fá fréttabréf um námskeið og ferðir - fróðleiksmoli fylgir alltaf með!
Netfang:
Nafn:
Tek við HTML pósti




© Vínskólinn 2006 – s.: (+354) 898 40 85 – vinskolinn(hja)vinskolinn.is og dominique(hja)vinskolinn.is