Áhugi fyrir bjór (sem er 78% af áfengissölu í Vínbúðunum) virðist vera að vaxa út fyrir venjulegan lagerbjór. Eftirspurn hefur verið mikil um námskeiðið sem Eymar hefur þróað og nafnið "Bjór með Eymari" hefur fest sig við það. Hann fer í gegnum framleiðsluaðferðir, mismunandi tegundir og tekur dæmi frá framleiðslunni í Belgíu, Englandi og sérstaklega Íslandi þar sem svokölluð "mikróbrugghús" hafa verið að framleiða sælkerabjóra undanfarið með mjög góðum árangri.