

VÍNSMÖKKUNAR-NÁMSKEIÐ OG ÚT AÐ BORÐA Á FRÁBÆRUM KJÖRUM !
Skráðu þig og þinn hóp á vínnámskeið og þú færð sérstök kjör á veitingahúsi í kjölfarið. Frábært kvöld í vændum!
---------------------
SKRÁ SIG Á NÁMSKEIÐ:
senda tölvupóst á
dominique@vinskolinn.is

Fyrir hverja eru námskeiðin?
Þau eru opin öllum sem hafa áhuga á að fræðast um vín og vínmenningu. Flest námskeiðin eru almenns eðlis, og reynt verður að halda þeim á aðgengilegum nótum. Fróðleikur, fagmennska, aðgengi, leiðsögn um vínheiminn eru kjörorðin.
Einstaklingar: skrá sig á námskeið skv. dagskrá. Lágmarksfjöldi: 8 til að halda námskeiðið, sem annars verður fellt niður.
Hópar: hægt er að biðja um aðra daga og þema en koma fram á dagskrá skólans, verð og dagsetning eftir samkomulagi.
Tímasetning.
Á þriðjudögum og fimmtudögum kl 18 til 19:30 nema annað sé tekið fram.
Hvað kosta námskeiðin?
Grunnnámskeiðin kosta 2500 kr á mann (Matur og Vín, Smökkum og giskum og Vínin í veislunni).
Flest öll hin námskeiðin kosta 3000 kr á mann, þar sem úrvalið af vínunum er í dýrari kantinum.
Sum sérhæfð námskeið eða námskeið eftir sérbeiðni verða á sérverði.
Verðið er alltaf auglýst þar sem lýsing námskeiða er.
Hvað er innifalið?
Innifalið í námskeiðsgjöld eru:
20 % afsláttur á völdum veitingastöðum í miðbænum (sjá lista undir samstarfsaðilar ) sem gildir sama kvöld og námskeiðið, nema á föstudögum.
námsgögn
5-6 vín
Greiðsla.
Vínskólinn er ekki með posa, þannig að greiðslan verður að millifæra fyrirfram (reikningur: 526-26-1952 kt. 101248-2169 (Dominique) og senda tölvupóst á vinskolinn@vinskolinn.is. Hægt er að greiða í reiðufé á staðnum.
Lágmarksfjöldi.
Lágmarksfjöldinn er 8 manns, en ef hópur nær ekki því lágmarki, er hægt að opna námskeiðið fyrir aðra til að ná þeirri tölu.
Fógetastofan tekur 25-26 í sæti, ef um stærri hóp er að ræða, verður að athuga aðra staði (mötuneyti eða annað) á vegum hópsins.
Hvernig get ég skráð mig?
Mjög einfalt: senda tölvupóst á dominique@vinskolinn.is þar sem verður að koma fram:
- heiti á námskeiðinu og dagsetning
- nafn
- kennitala
- netfang
- símanúmer
Skráning verður staðfest með tölvupósti.
UMMÆLI OG MEÐMÆLI
(sent í Vínskóla Eðalvína)
"Sæl Dominique,
Kærar þakkir fyrir einstaklega ánægjulegt námskeið í gær. Áherslan á tengsl matar og víns var sérstaklega góð en það er alltof oft að eingöngu er verið að smakka vín án tengsla við matinn sem gæti verið góður með víninu"
S. og D.
"Ég hélt að ég vissi ekkert um vín, ég uppgötvaði að það var meira í mér en ég hélt!"
Ó.
"Ég þakka fyrir frábært námskeið um Mat og Vín - vil hér með skrá mig á framhaldsnámskeið, hvenær sem það verður!"
J.
"Það er allt annað að smakka vín með mat og átta sig á því hvað einföld atriði hafa mikið að segja - ekki bara smakka vínin ein og sér."
E.
"Sæl og blessuð. Okkur fannst mjög gaman á kampavíns-námskeiðinu, fróðlegt og skemmtilegt. Líka bara svo gaman að gera eitthvað svona saman í þessu þjóðfélagi þar sem hraðinn er svo mikill að maður gefur sér svo sjaldan tíma til að setjast niður saman og pæla í einhverju. Mér fannst námskeiðið beinlínis mannbætandi !"
V.